Leiguskilmálar
Hvað er innifalið?
Leiguverð er án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram.
Innifalið í leiguverði: tækið fullhlaðið eða með fullan tank við afhendingu, stutt kennsla á tækið við afhendingu og hefðbundið viðhald og slit.
Flutningur er EKKI innifalinn nema það sé sérstaklega tekið fram. Hægt er að sækja tækið til okkar á Tunguháls 17 eða fá það sent á verkstað gegn gjaldi.
Leigutímabil og skil
Leigutímabil hefst þegar tækið er afhent og lýkur þegar því hefur verið skilað til Kistufells eða það sótt á verkstað. Tæki skal skila á umsömdum skiladegi fyrir kl. 12:00 nema um annað sé samið. Fari leigutími fram yfir umsaminn skiladag reiknast leiga fyrir hvern byrjaðan dag.
Ábyrgð leigutaka
Leigutaki ber ábyrgð á tækinu frá afhendingu til skila og skal fara vel með það og nota það eingöngu í þeim tilgangi sem það er ætlað. Leigutaki ber ábyrgð á tjóni sem verður á tækinu á leigutíma, öðru en eðlilegu sliti.
Tryggingar og eigin áhætta
Tækin eru tryggð af Kistufelli. Verði tjón á tæki á leigutíma greiðir leigutaki eigin áhættu samkvæmt gildandi verðskrá Kistufells. Tjón sem rekja má til rangrar notkunar eða gáleysis greiðir leigutaki að fullu.
Þrif, hleðsla og eldsneyti
Tæki skal skilað hreinu og fullhlöðnu eða með fullan tank. Sé tæki skilað óhreinu, með ónæga hleðslu eða eldsneyti innheimtir Kistufell gjald fyrir þrif, hleðslu eða eldsneyti samkvæmt verðskrá.
Notkunartími
Leiguverð miðast við eðlilega notkun á dagvinnutíma, að hámarki 8 klst. á dag nema um annað sé samið.
Afbókanir
Afbókun skal berast Kistufelli eins fljótt og hægt er. Afbókun sem berst minna en 24 klst. fyrir afhendingu getur verið innheimt sem einn leigudagur og flutningskostnaður sem fallið hefur til.
Réttindi og þekking
Leigutaki ber ábyrgð á því að þeir sem nota tækið hafi tilskilin réttindi og þekkingu til að stjórna því, í samræmi við reglur Vinnueftirlitsins. Leigutaki ber ábyrgð á öryggi á vinnusvæði.
Staðfesting
Leigubeiðni er ekki bindandi fyrr en Kistufell hefur yfirfarið hana og staðfest að tækið sé laust. Staðfesting með endanlegu verði og leigutímabili er send í tölvupósti.
Sjá einnig persónuverndarstefnu Kistufells.
Spurningar um leigu?
Við aðstoðum þig við að velja rétta tækið fyrir verkið. Hafðu samband og við finnum lausn.