Gæði, reynsla og þjónusta á góðu verði
Kistufell var stofnað árið 1952 og á sér því langa og farsæla sögu. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á vinnulyftum, skotbómulyfturum, lagertækjum og öðrum atvinnutækjum.
Við bjóðum breitt úrval af vönduðum tækjum frá viðurkenndum framleiðendum. Þar má sérstaklega nefna vinnulyftur frá Niftylift, Skyjack og Bravi.
Markmið okkar er að bjóða vönduð tæki á hagstæðu verði, veita persónulega og faglega ráðgjöf og útvega viðskiptavinum réttu tækin eins hratt og kostur er. Við leggjum áherslu á góð og traust viðskiptasambönd og þjónustu sem viðskiptavinir geta reitt sig á.
Framkvæmdastjóri Kistufells er Ómar Einarsson
s. 821 9980 / 577 1313
Góðar og afkastamiklar
LGMG framleiðir öflugar vinnulyftur og skotbómulyftara. Þessar vélar henta vel fyrir verktaka, hvort sem er í smíði, í raflögnum, pípulögnum eða viðhaldi.
Nánar um LGMG
Skilvirkar og öruggar
BRAVI Leonardo HD vinnulyftan er einstaklega létt og meðfærileg. Hún vegur aðeins 560 kg og er 76 cm á breidd. Hún kemst aðveldlega þangað sem aðrar lyftur komast ekki.
Nánar um BRAVI
Klassískar og traustar
SKYJACK hefur verið leiðandi í heiminum á sviði vinnulyftna í yfir 40 ár. Vélar fyrirtækisins eru þekktar fyrir gæði og áreiðanleika.
Nánar um Skyjack
Léttar og sterkar
NIFTYLIFT eru fyrirferðalitlar og léttar vinnulyftur sem tryggja hámarks afköst. Þær koma sér sérlega vel þar sem er erfitt aðfengi á verkstað.
Nánar um Niftylift