Bravi varahlutir

Kistufell er söluaðili Bravi Platforms á Íslandi og útvegar varahluti í allar Bravi lyftur, þar á meðal Leonardo HD, Leonardo 430, Lui 460 og Sprint línuna.

Við erum í beinu sambandi við verksmiðjuna og finnum réttan hlut út frá gerð og serienúmeri, hvort sem vantar rafgeyma, hleðslutæki, stýribúnað eða slitfleti.

Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd af hlutnum eða vélinni og við finnum réttan hlut.

Algengir Bravi varahlutir

Til að finna réttan hlut þurfum við helst gerð (model), árgerð og serienúmer vélarinnar. Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar, oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið.

Hafðu samband

📞
557 1313Mánudaga-Föstudaga, 8:00-17:00
✉️
kistufell@kistufell.isSvörum innan 24 klst.