Niftylift varahlutir

Kistufell er söluaðili Niftylift á Íslandi og útvegar varahluti í allar Niftylift vinnulyftur: kerrulyftur (Nifty 120 til 210), sjálfkeyrandi bómulyftur (HR-línan), Self Drive lyftur og beltalyftur (TrackDrive).

Við sækjum hluti beint til framleiðanda og finnum rétta hlutinn út frá gerð og serienúmeri, hvort sem það er stýripinni, hleðslutæki, rafgeymir, SiOPS öryggisbúnaður, slöngur eða þéttisett fyrir hybrid-vélar.

Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd af hlutnum eða vélinni og við finnum réttan hlut.

Algengir Niftylift varahlutir

Til að finna réttan hlut þurfum við helst gerð (model), árgerð og serienúmer vélarinnar. Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar, oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið.

Hafðu samband

📞
557 1313Mánudaga-Föstudaga, 8:00-17:00
✉️
kistufell@kistufell.isSvörum innan 24 klst.