Skyjack varahlutir
Kistufell er söluaðili Skyjack á Íslandi og útvegar varahluti í allar Skyjack vélar: skærulyftur (DC og RT), mastralyftur og bómulyftur.
Skyjack er þekkt fyrir einfalt og traust rafkerfi sem auðvelt er að þjónusta. Við útvegum liða (relay), rofa, stýripinna, rafgeyma, hleðslutæki, tjakka, slöngur og aðra hluti út frá gerð og serienúmeri.
Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd af hlutnum eða vélinni og við finnum réttan hlut.
Algengir Skyjack varahlutir
- Rafgeymar og hleðslutæki
- Stýripinnar (joystick) og stjórnborð
- Öryggisrofar og skynjarar
- Rafmótorar, spólur og liðar (relay)
- Glussatjakkar, dælur og ventlar
- Slöngur og tengi
- Hjól, dekk og legur
- Bremsuhlutir
- Síur og þéttisett
- Merkingar, límmiðar og handbækur
Til að finna réttan hlut þurfum við helst gerð (model), árgerð og serienúmer vélarinnar. Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar, oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið.
Hafðu samband
557 1313Mánudaga-Föstudaga, 8:00-17:00
kistufell@kistufell.isSvörum innan 24 klst.