Snorkel varahlutir
Kistufell útvegar varahluti í allar gerðir Snorkel vinnulyfta: skærulyftur, bómulyftur og mastralyftur.
Lýstu hlutnum sem vantar eða vandamálinu, láttu gerð og serienúmer fylgja og við finnum réttan varahlut og sendum þér verð og afhendingartíma.
Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd af hlutnum eða vélinni og við finnum réttan hlut.
Algengir Snorkel varahlutir
- Rafgeymar og hleðslutæki
- Stýripinnar (joystick) og stjórnborð
- Öryggisrofar og skynjarar
- Rafmótorar, spólur og liðar (relay)
- Glussatjakkar, dælur og ventlar
- Slöngur og tengi
- Hjól, dekk og legur
- Bremsuhlutir
- Síur og þéttisett
- Merkingar, límmiðar og handbækur
Til að finna réttan hlut þurfum við helst gerð (model), árgerð og serienúmer vélarinnar. Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar, oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið.
Hafðu samband
557 1313Mánudaga-Föstudaga, 8:00-17:00
kistufell@kistufell.isSvörum innan 24 klst.