Genie varahlutir

Genie er eitt útbreiddasta vinnulyftumerkið á Íslandi og Kistufell útvegar varahluti í allar gerðir Genie lyfta: GS skærulyftur, Z liðbómulyftur, S skotbómulyftur og GR mastralyftur.

Þótt Genie sé ekki eitt af sölumerkum okkar finnum við réttan hlut út frá gerð og serienúmeri vélarinnar og sendum þér verð og afhendingartíma, oftast innan sólarhrings.

Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd af hlutnum eða vélinni og við finnum réttan hlut.

Algengir Genie varahlutir

Til að finna réttan hlut þurfum við helst gerð (model), árgerð og serienúmer vélarinnar. Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar, oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið.

Hafðu samband

📞
557 1313Mánudaga-Föstudaga, 8:00-17:00
✉️
kistufell@kistufell.isSvörum innan 24 klst.