Varahlutir
í vinnulyftur
Kistufell útvegar varahluti í allar tegundir og gerðir vinnulyfta, ekki bara þau vörumerki sem við erum með umboð fyrir. Niftylift, Genie, JLG, Skyjack, Haulotte, Snorkel, LGMG, Bravi og fleiri.
Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu, sendu mynd og við finnum réttan hlut.
Senda fyrirspurn ↓ eða hringdu í síma 557 1313
Fyrirspurn um varahluti
Fylltu út það sem þú veist. Stjörnumerktir reitir eru nauðsynlegir, annað er valkvætt en hjálpar okkur að finna réttan hlut hraðar.
Varahlutir eftir vörumerkjum
Við útvegum meðal annars varahluti fyrir þessi vörumerki. Vantar þitt merki á listann? Sendu samt fyrirspurn, við finnum hlutinn.
Algengir varahlutir í vinnulyftur
Dæmi um varahluti sem við útvegum reglulega:
- Rafgeymar og hleðslutæki
- Stýripinnar (joystick) og stjórnborð
- Öryggisrofar og skynjarar
- Rafmótorar, spólur og liðar (relay)
- Glussatjakkar, dælur og ventlar
- Slöngur og tengi
- Hjól, dekk og legur
- Bremsuhlutir
- Síur og þéttisett
- Merkingar, límmiðar og handbækur
Algengar spurningar
Útvegið þið varahluti í öll vörumerki vinnulyfta?
Já. Við útvegum varahluti í allar tegundir og gerðir vinnulyfta, ekki bara þau vörumerki sem við erum með umboð fyrir. Þar á meðal eru Niftylift, Genie, JLG, Skyjack, Haulotte, Snorkel, LGMG, Bravi, IXOLIFT, Dingli og fleiri.
Hvað þarf ég að vita til að senda fyrirspurn?
Það hjálpar mest að vita framleiðanda, gerð (model), árgerð og serienúmer lyftunnar. Þú þarft samt ekki að vita nákvæmlega hvaða varahlut vantar. Lýstu vandamálinu eða hlutnum og sendu mynd, þá finnum við réttan hlut.
Hvar finn ég serienúmerið á vinnulyftunni?
Serienúmerið er á upplýsingaplötu lyftunnar. Hún er oftast á undirvagninum eða við stjórnborðið og númerið er líka skráð í handbók vélarinnar.
Hvað tekur langan tíma að fá svar og verð?
Við svörum fyrirspurnum innan 24 klukkustunda á virkum dögum með verði og áætluðum afhendingartíma.